Dregið hefur úr fátækt barna en umtalsverður munur er á milli samfélagshópa

Imported from official source

Announcement

Árið 2024 var hlutfall barna sem búa á heimilum undir lágtekjumörkum 12,6%, samanborið við 16,5% árið 2000. Það jafngildir því að um 10.500 börn hafi verið undir lágtekjumörkum árið 2024. Hlutfall barna sem búa við varanlega fátækt hefur einnig lækkað lítillega og var 5,1% árið 2024. Staðan á Íslandi er í meginatriðum sambærileg við stöðuna í Noregi, Finnlandi og Danmörku.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslunni Fátækt barna og staða barnafjölskyldna – samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar, skýrsla III, sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið og rædd á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag. Skýrslan er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað vegna hennar. Greiningar skýrslunnar byggjast á skráargögnum Hagstofu Íslands fyrir árin 2000–2024, ásamt gögnum úr Íslensku æskulýðsrannsókninni frá árinu 2025.

Mikill munur er á stöðu barna eftir fjölskyldugerð, uppruna og menntun foreldra. Um 30% barna einstæðra foreldra búa við fátækt, samanborið við um 8% barna sem búa með tveimur foreldrum. Hlutfallið hækkar jafnframt verulega þegar börn eru fjögur eða fleiri á heimili. Menntun foreldra hefur einnig skýr tengsl við barnafátækt. Árið 2023 var fátæktarhlutfallið 31,7% meðal barna þar sem það foreldri sem hafði hærra menntunarstig hafði ekki lokið stúdentsprófi, samanborið við 17,1% ef foreldrið hafði lokið stúdentsprófi og 4,2% ef það hafði lokið framhaldsnámi á háskólastigi.

Þá vekur staða barna af erlendum uppruna sérstaka athygli. Á meðal barna sem fædd eru erlendis og eiga tvo foreldra sem báðir eru af erlendum uppruna hækkaði fátæktarhlutfallið úr 23% árið 2000 í 33,6% árið 2024. Hlutfallið er hæst hjá fjölskyldum sem hafa dvalið í skamman tíma á Íslandi en lækkar verulega með lengri dvalartíma þeirra.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Prime Minister's Office (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/dregid-hefur-ur-fataekt-barna-en-umtalsverdur-munur-er-a-milli-samfelagshopa

Officially imported this from Prime Minister's Office (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Prime Minister's Office (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Forsaetisraduneyti/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
dregid-hefur-ur-fataekt-barna-en-umtalsverdur-munur-er-a-milli-samfelagshopa

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.