Langvinnur hallarekstur stöðvaður

Imported from official source

Announcement

Tekjur og gjöld ríkissjóðs ná jafnvægi í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 og heildarafkoman er jákvæð um 5 milljarða króna. Langvinnur hallarekstur ríkissjóðs verður þar með stöðvaður og afkoman jákvæð í fyrsta sinn í nær áratug.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagráðherra, kynnti frumvarpið í dag en það verður lagt fram á Alþingi við þingsetningu á morgun.

„Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfleytt í átta ár. Nú höfum við snúið þeim mínus í plús og fært ríkisfjármálin á traustari grunn. Þetta er mögulegt vegna þess að við erum að halda aftur af útgjaldavexti, bæta rekstur ríkisins og forgangsraða fjármunum í þágu velferðar og grunnþjónustu. Hallalaus fjárlög eru ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda þess að draga úr verðbólgu og vaxtabyrði og tryggja að ríkið geti staðið undir mikilvægri þjónustu til framtíðar,“ segir Daði Már.

Markvissar aðgerðir skapa svigrúm til brýnna verkefna

Gripið er til aðgerða til að auka skilvirkni í rekstri ríkisins sem nema samtals 44,2 milljörðum króna. Þær felast meðal annars í almennu aðhaldi, fækkun stöðugilda hjá ríkinu, hagkvæmari opinberum innkaupum, einföldun á stjórnsýslu og sameiningu stofnana.

Kröfu um aðhald er dreift með hliðsjón af eðli starfseminnar, mikilvægi grunnþjónustu og svigrúmi til hagræðingar. Því er gerð minni aðhaldskrafa til heilbrigðis- og öldrunarstofnana, skóla, dómstóla og löggæslustarfsemi til að verja daglega þjónustu við almenning.

Samhliða þessu aðhaldi er 28,8 milljörðum króna varið í ný og brýn verkefni sem efla samfélagið. Helstu áherslur eru:

  • Heilbrigðis- og velferðarmál: Aukið fé rennur til nýrra hjúkrunarrýma, eflingar heilbrigðisstofnana og styttingar biðlista. Stuðningur við börn með fjölþættan vanda er aukinn.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/langvinnur-hallarekstur-stodvadur

    Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    langvinnur-hallarekstur-stodvadur

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.