Ríkisstjórnin kynnti áherslumál vetrarins

Imported from official source

Announcement

Formenn ríkisstjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag áherslumál ríkisstjórnarinnar á komandi þingvetri.

„Breiðu línurnar í vetur birtast m.a. í fyrstu hallalausu fjárlögum í tæp 10 ár sem við kynntum í gær, ári fyrr en stefnt var að á síðasta kjörtímabili. Þetta er það mikilvægasta sem ríkið getur gert til að hætta að kynda undir þenslu og verðbólgu,“ segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.

„Við höldum áfram þríhliða samtali við ASÍ og SA og ýmis mál í þingmálaskrá hafa verið rædd á þeim vettvangi, eins og frumvarp til að draga úr vægi verðtryggingar og frumvarp um lögfestingu á viðurlögum við brotum á lágmarkskjörum launafólks. Á sama tíma styrkjum við áfram grunninn, m.a. með stórfjölgun hjúkrunarrýma, innviðafélaginu Göng og brú sem þegar er farið af stað og mikilvægum þingmálum á sviði orkumála,“ segir Kristrún.

EES-samningurinn styrktur, gagnsæi í sjávarútvegi og sanngjörn innviðagjöld

Þá eru mál sem varða almannahagsmuni, gagnsæi og samkeppni á markaði í öndvegi á þingmálaskrá. Frumvarp atvinnuvegaráðherra um eignarhald í sjávarútvegi verður lagt fram strax í haust og nýju frumvarpi um náttúru- og innviðagjald er ætlað að tryggja að ferðamenn sem njóta náttúruperla Íslands taki sanngjarnan þátt í kostnaði við vernd þeirra og uppbyggingu innviða.

Lögð er áhersla á að standa vörð um EES-samninginn í þinginu í vetur. Utanríkisráðherra mun leggja fram svokallaða Bókun 35 í haust, til að tryggja fulla virkni samningsins í þágu einstaklinga og fyrirtækja.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Prime Minister's Office (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/rikisstjornin-kynnti-aherslumal-vetrarins

Officially imported this from Prime Minister's Office (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Prime Minister's Office (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Forsaetisraduneyti/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
rikisstjornin-kynnti-aherslumal-vetrarins

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.