Staðan á vinnumarkaði rædd í Þjóðhagsráði

Imported from official source

Announcement

Þjóðhagsráð kom saman til fundar síðdegis í dag. Á dagskrá fundarins var þríhliða samtal ríkisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem staðið hefur frá því í vor.

Á fundinum voru m.a. kynntar niðurstöður þriggja hópa stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem aðild eiga að Þjóðhagsráði. Fjölluðu hóparnir um þróun tekna og fjárhagsstöðu samfélagshópa, valkosti til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum og loks fýsileika þess að styrkja launatölfræði um íslenskan vinnumarkað. Á fundinum kom einnig fram að kjaratölfræðinefnd muni vinna sérstakt mat á launaskriði og er sú vinna hafin í nefndinni.

Kaupmáttur hefur vaxið þvert á samfélagshópa

Meðal þess sem kynnt var á fundinum er greinargerð um tekjuþróun og fjárhagsstöðu samfélagshópa undanfarinn áratug. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að kaupmáttur hefur vaxið í öllum tekjutíundum á tímabili núverandi kjarasamninga og að ekki er teljandi munur á hlutfallslegum vexti kaupamáttar milli tekjutíunda. Sé horft yfir lengra tímabil, síðan 2015 og 2018, hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist hlutfallslega meira hjá lágtekjufólki en hátekjufólki.

Niðurstöður greiningarinnar varpa jafnframt ljósi á kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur að jafnaði aukist hlutfallslega meira undanfarin ár hjá fólki yfir fimmtugu, þarf af mest hjá fólki yfir sjötugu og minnst hjá fólki á aldursbilinu 30-49 ára.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Prime Minister's Office (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/stadan-a-vinnumarkadi-raedd-i-thjodhagsradi

Officially imported this from Prime Minister's Office (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Prime Minister's Office (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Forsaetisraduneyti/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
stadan-a-vinnumarkadi-raedd-i-thjodhagsradi

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.