Umboðsmaður barna afhenti forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025

Imported from official source

Announcement

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í vikunni Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025.

Í skýrslunni er farið yfir starfsemi umboðsmanns barna og helstu verkefni á árinu 2025 en árið markaði tímamót í sögu embættisins þegar 30 ár voru liðin frá því að það tók til starfa. Á þeim tíma hafa réttindi barna samkvæmt Barnasáttamála Sameinuðu þjóðanna styrkst á margvíslegan hátt og rödd barna fengið aukið vægi í íslensku samfélagi.

Þrátt fyrir þessar framfarir endurspegla verkefni umboðsmanns að enn megi gera betur við að hlusta á sjónarmið barna og stjórnvöld þurfi að taka markvissar á ýmsum réttindamálum þeirra.

Á árinu var á vegum embættisins ráðist í greiningu á stöðu réttinda bara og innleiðingu Barnasáttmálans í þjónustu við þau. Í skýrslu embættisins Barnvæn réttarvarsla, er í fyrsta sinn lagt heildstætt mat á hvernig íslenskt réttarkerfi og stjórnsýsla samræmast réttindum barna í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga íslenskra stjórnvalda.

Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir ágæta lagalega umgjörð og almenna góða þekkingu á hugmyndafræði barnvænnar réttarvörslu innan réttarkerfisins og opinberrar stjórnsýslu megi víða enn grípa til ráðstafana til að tryggja barnvæna málsmeðferð. Að mati umboðsmanns er skýrslan mikilvægur grunnur að áframhaldandi samtali við stjórnvöld og stofnanir um nauðsynlegar úrbætur.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Prime Minister's Office (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/umbodsmadur-barna-afhenti-forsaetisradherra-arsskyrslu-embaettisins-fyrir-arid-2025

Officially imported this from Prime Minister's Office (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Prime Minister's Office (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Forsaetisraduneyti/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
umbodsmadur-barna-afhenti-forsaetisradherra-arsskyrslu-embaettisins-fyrir-arid-2025

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.