Mælti fyrir tveimur þingsályktunartillögum: um offitu og um sjaldgæfa sjúkdóma
Safety Classified by Officially
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra mælti à gær fyrir þingsályktunartillögum sÃnum um aðgerðaáætlun til ársins 2030 vegna offitu og landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma til ársins 2031. Tillögunum hefur nú verið vÃsað til umfjöllunar velferðarnefndar Alþingis.
Offita er vaxandi lýðheilsuvandamál á heimsvÃsu og er áætlað að árið 2030 muni 3 milljarðar manna vera à ofþyngd. Hér á landi hefur tÃðni offitu farið hratt vaxandi lÃkt og annars staðar. Ãrið 2025 voru 24% fullorðinna og 7,5% barna hér á landi með offituvanda en 60% fullorðinna og 26,4% barna voru à ofþyngd eða með offituvanda. Hlutfall fullorðinna með offituvanda hefur aukist um rÃflega 4,5% frá árinu 2015. Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar er að sporna gegn þessari þróun á markvissan hátt.
à stuttu máli: Með forvörnum verði unnið að þvà að draga úr nýgengi offitu og koma à veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Offita verði meðhöndluð lÃkt og aðrir langvinnir sjúkdómar með formlegri greiningu og aðgengi að fjölbreyttum meðferðarúrræðum og endurhæfingu þar sem byggt verði á gagnreyndum aðferðum. Unnið verði gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum à samfélaginu.
Sjaldgæfir sjúkdómar eru skilgreindir þeir sem hafa áhrif á færri en fimm af hverjum 10.000 einstaklingum. Um 7.000 sjaldgæfir sjúkdómar eru þekktir, meirihluti þeirra er af erfðafræðilegum orsökum. Ekki er vitað nákvæmlega hve margir sjaldgæfir sjúkdómar finnast hér á landi, né hve margir eru með slÃka sjúkdóma. Sjaldgæfir sjúkdómar hafa vÃðtæk áhrif á einstaklinga og fjölskyldur þeirra vegna skorts á aðgengi að sérhæfðri meðferð og ófullnægjandi stuðningskerfa. Meginmarkmið landsáætlunarinnar er að bregðast við þessum áskorunum og bæta stöðu þeirra sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Ministry of Health (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-25-maelti-fyrir-tveimur-thingsalyktunartillogum-um-offitu-og-um-sjaldgaefa-sjukdoma
Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
- Imported
- October 04, 2026 07:31
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-09-25-maelti-fyrir-tveimur-thingsalyktunartillogum-um-offitu-og-um-sjaldgaefa-sjuk...