Landspítali tekur við nýju húsnæði bráðamatsdeildar

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Landspítali hefur formlega tekið við nýju húsnæði bráðamatsdeildar sem Nýr Landspítali ohf. (NLSH) hefur reist. Nýja deildin er hluti af stöðugum umbótum Landspítala sem miða að því að efla bráðaþjónustu, draga úr bið og bæta flæði sjúklinga.

Stór áfangi sem bætir þjónustu og eykur öryggi sjúklinga

„Þetta er afar stór áfangi fyrir Landspítala og fólk sem leita þarf eftir bráðþjónustu spítalans því ekki einungis fáum við 20 ný rými fyrir sjúklinga sem létta mun álagi af bráðamóttökunni heldur er þessi nýja eining mikilvægur hlekkur í endurskipulagningu bráðaþjónustunnar til framtíðar,” segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.

„Heilbrigðisstofnun er ekki aðeins húsnæðið, heldur fyrst og fremst fólkið sem þar starfar. Ég afhendi nýja bráðamatsdeild með þökkum til þeirra sem staðið hafa vaktina á bráðamóttökunni og haldið þjónustunni gangandi við erfiðar aðstæður. Þessi nýja deild mun auka öryggi sjúklinga, stytta tímann frá því að sjúklingur kemur veikur inn á bráðamóttöku og þar til hann fær greiningu og meðferð,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún afhenti forstjóra Landspítala lyklavöld að matsdeildinni í dag.

Bráðamatsdeild lyflækninga veitir samþætt sérfræðimat, skilvirka greiningu og þverfaglega þjónustu svo sjúklingar fái rétta meðferð á réttum stað eins snemma í ferlinu og unnt er.

Styttir legutíma og bið eftir þjónustu

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/landspitali-tekur-vid-nyju-husnaedi-bradamatsdeildar

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
landspitali-tekur-vid-nyju-husnaedi-bradamatsdeildar

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.