Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun til ársins 2030. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur hvatt þjóðir heims til að setja fram slíkar áætlanir, ekki síst vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar í hópi þeirra greinast með heilabilun á næstu árum og áratugum.

Þetta er önnur aðgerðaáætlunin um þjónustu við einstaklinga með heilabilun hér á landi. Sú fyrsta var sett fram árið 2019 og gilti til ársins 2025. Þar voru settar fram 48 aðgerðir, allar með mælanleg markmið sem unnið hefur verið eftir og hefur meiri hluti þeirra náð fram að ganga.

Vinna við uppfærslu gildandi aðgerðaáætlunar hófst síðla árs 2025, í samvinnu sérfræðings heilbrigðisráðuneytisins, Jóns Snædals öldrunarlæknis og Guðlaugs Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Azheimersamtakanna. Áætlunin var birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 9. júní síðastliðinn. Alls bárust 15 umsagnir og hefur áætlunin verið uppfærð með hliðsjón af þeim. Umsagnaraðilum er þakkað fyrir góðar og gagnlegar ábendingar og tillögur.

Nýja aðgerðaáætlunin sem hér er birt byggir á fyrri áætlun en tekur mið af þeim áherslubreytingum sem orðið hafa á síðustu árum í málefnum og þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Rík áhersla er nú lögð á forvarnir og snemmtæka íhlutun. Í áætluninni eru skilgreindar 27 tímasettar aðgerðir og tilgreint hverjir beri ábyrgð á framkvæmd þeirra. Aðgerðirnar eru á eftirtöldum sex sviðum:

  • Fjölgun virkni-, dagþjálfunar- og hvíldarúrræða
  • Aukin þekking á heilabilun í samfélaginu
  • Aðgerðir sem ólokið er frá síðustu aðgerðaáætlun
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Health (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/adgerdaadaetlun-um-thjonustu-vid-einstaklinga-med-heilabilun

    Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    adgerdaadaetlun-um-thjonustu-vid-einstaklinga-med-heilabilun

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.