Fjölgun hjúkrunarrýma - gjörbreytt staða á Landspítala

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

„Staðan á Landspítala varðandi sjúklinga með færni og heilsumat hefur ekki verið betri það sem af er þessari öld.“ Svohljóðandi tölvupóstur barst heilbrigðisráðuneytinu frá Landspítala í gær.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var kveðið á um að ríkisstjórnin myndi leiða þjóðarátak í umönnun eldra fólks, m.a. með fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar.

„Frá fyrsta degi höfum við unnið markvisst að því að hraða uppbyggingu hjúkrunarrýma og skapa fleiri úrræði fyrir aldraða sem annars þyrftu jafnvel að liggja á göngum Landspítala. Nú sjáum við árangurinn sem er gríðarlega mikilvægur, bæði fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga og fyrir alla starfsemi spítalans. Að tryggja öldruðum viðeigandi þjónustu og öryggi eftir sjúkrahúslegu er eilífðarverkefni sem við munum áfram leggja mikla áherslu á“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Síðastliðna 12 mánuði hafa verið opnuð 244 ný rými fyrir aldraða; 64 hjúkrunarrými í Boðaþingi í Kópavogi, 80 hjúkrunarrými á Nesvöllum í Reykjanesbæ og 100 rými í Urðarhvarfi sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými. Nýlega voru Vífilsstaðir opnaðir aftur eftir umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu. Þar eru 48 rými. Þá er fyrirhugað að opna 154 ný hjúkrunarrými árið 2027 og 251 árið 2028.

Á næstu vikum verður svo hjúkrunarheimilið Hlévangur í Reykjanesbæ opnað að nýju eftir endurbætur á húsnæði og aðstöðu. Mörg fleiri uppbyggingarverkefni eru í undirbúningi eða hafin, líkt og fram kemur í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársins 2030.

Þá verður ný bráðamatsdeild við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi opnuð í haust sem mun létta álagi af bráðamóttökunni, bæta enn flæði sjúklinga og þjónustu við sjúklinga.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Health (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/fjolgun-hjukrunarryma-gjorbreytt-stada-a-landspitala

Officially imported this from Ministry of Health (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Health (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Heilbrigdisraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
fjolgun-hjukrunarryma-gjorbreytt-stada-a-landspitala

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.