Umbætur á aðkomu og aðstöðu fyrir almenningsvagna á Keflavíkurflugvelli

Imported from official source

Announcement

Mikilvægar umbætur hafa verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir almenningsvagna sem aka til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni. Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum, merkingar bættar og gönguleiðin að almenningsvögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð fyrir almenningsvagna.

Breytingarnar taka til leiðar 55 sem ekur milli BSÍ og/eða Fjarðar til Keflavíkurflugvallar og leiðar 89 sem ekur milli Reykjanesbæjar/Suðurnesjabæjar og Keflavíkurflugvallar. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi á morgun, fimmtudaginn 1. október nk.

Verkefnið hefur verið unnið í náinni samvinnu Vegagerðarinnar, sem sér um rekstur landsbyggðarstrætó, Isavia og ASHB (Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.). Breytingarnar eru í takt við tillögur starfshóps sem skipaður var um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Keflavíkurflugvallar.

„Þetta er mikilvægur áfangi við að bæta almenningssamgöngur til Keflavíkurflugvallar. Við viljum að farþegar og starfsfólk eigi auðveldara með að velja sér ferðamáta til og frá flugvellinum. Nýjar stoppistöðvar og yfirbyggðir göngustígar gera þar gæfumuninn. Næstu skref okkar verða að skapa forsendur til auka tíðni og bæta þjónustu almenningsvagna á þessari leið,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

  • Ný stoppistöð fyrir brottfararfarþega (KEF Brottfarir).  Ný stöð tekin í notkun brottfararmegin við flugstöðina fyrir farþega á leið í flug. Leið 55 ekur alla leið inn að flugstöðinni og hleypir út farþegum á sama stað og flugrútur. Ekki verður hægt að stíga um borð í almenningsvagna á þessari stöð.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-30-umbaetur-a-adkomu-og-adstodu-fyrir-almenningsvagna-a-keflavikurflugvelli

    Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-09-30-umbaetur-a-adkomu-og-adstodu-fyrir-almenningsvagna-a-keflavikurflugvelli

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.