Veigamiklar breytingar hafa verið gerðar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu

Imported from official source

Announcement

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert veigamiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu (nr. 324/2023). Markmiðið með breytingum er að tryggja skilvirka og örugga þjónustu fyrir neytendur og efla eftirlit með leigubifreiðaþjónustu. Breytingarnar taka allar gildi strax ef undan er skilið ákvæði um sérstök skráningarmerki.

Helstu breytingar sem hafa nú þegar tekið gildi í reglugerð um leigubifreiðaakstur eru:

  • Samgöngustofu ber að framkvæma árlegt eftirlit með leyfishöfum, koma upp sérstöku áhættumatskerfi og sinna frekara eftirliti á grundvelli þess.
  • Samgöngustofu er falið að gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits.
  • Próftaka fer fram án utanaðkomandi aðstoðar.
  • Samgöngustofu ber að hafa árlegt eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum.
  • Leigubifreiðastöðvar eiga að setja og birta eigin hátternisreglur. Þeim ber einnig að halda rafræna atvikaskrá um frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda.
  • Ítarlegri kröfur um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteini í leigubílum.
  • Leigubifreiðastöðvar skulu halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og upplýsingar úr henni skulu vera eftirlitsaðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt.
  • Leyfishafa ber að tilkynna Samgöngustofu um úrskurði eftirlitsaðila, t.d. Neytendastofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt talist brot á góðum viðskiptaháttum og leitt til leyfissviptingar
  • Leigubifreiðar verði auðkenndar með sérstöku skráningarmerki (lituðum númeraplötum). Sú breyting tekur gildi 1. apríl 2027 og sérstök reglugerð verður sett um nýju skráningarmerkin.
  • Breytingarnar á reglugerðinni eru liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu. Frumvarp innviðaráðherra um breytingar á leigubifreiðalögum voru samþykktar á Alþingi í mars sl. sem tóku gildi 1. júní sl.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-28-veigamiklar-breytingar-hafa-verid-gerdar-a-reglugerd-um-leigubifreidathjonustu

    Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-09-28-veigamiklar-breytingar-hafa-verid-gerdar-a-reglugerd-um-leigubifreidathjonustu

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.