Mælt fyrir nýjum heildarlögum um sveitarstjórnir: Víðtækar breytingar styrki sveitarstjórnarstigið

Imported from official source

Announcement

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi að nýjum heildarlögum um sveitarstjórnir en í því felast víðtækar breytingar frá gildandi sveitarstjórnarlögum. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á síðasta vorþingi en var nú endurflutt með minniháttar breytingum.

Markmið frumvarpsins er sem fyrr að styrkja og styðja við sveitarstjórnarstigið á Íslandi með því tryggja að sveitarfélög um allt land séu öflug, sjálfbær og vel í stakk búin til að takast á við umfangsmikil verkefni og tryggja íbúum faglega og skilvirka grunnþjónustu.

„Frumvarpið tekur á grunngerð sveitarstjórnarstigsins, fjármálum þess, samstarfsformum og lýðræðislegu aðhaldi með sveitarfélögum. Allar breytingar miða að einu og sama markmiði – að styrkja sveitarstjórnarstigið. Tilgangurinn er að skapa betri forsendur fyrir öflug og sjálfbær sveitarfélög. Rannsóknir sýna að þjónusta við íbúa er almennt betri og skilvirkari í fjölmennari sveitarfélögum. Með frumvarpinu stígum við skref að nútímalegra og skilvirkara sveitarstjórnarstigi sem er betur í stakk búið til að takast á við verkefni framtíðarinnar, íbúum sínum til hagsbóta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra

Heildarlög og fallið frá lágmarksíbúafjölda

Unnið hefur verið að endurskoðun sveitarstjórnarlaga um alllangt skeið með víðtæku samráði við almenning og hagaðila og í náinni samvinnu við sveitarstjórnarstigið og landshlutasamtök.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/maelt-fyrir-nyjum-heildarlog-um-sveitarstjornir-vidtaekar-breytingar-styrki-sveitarstjornarstigid

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
maelt-fyrir-nyjum-heildarlog-um-sveitarstjornir-vidtaekar-breytingar-styrki-sveitarstjo...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.