Yfirlýsing frá norrænu ráðherranefndinni: Norrænt hagvaxtarbandalag

Imported from official source

Announcement

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, samþykkti í gær, ásamt norrænum atvinnuvegaráðherrum og öðrum samstarfsráðherrum, yfirlýsingu um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda á heimsvísu.

Yfirlýsingin byggir á nýrri skýrslu um samkeppnishæfni Norðurlanda, Greining á samkeppnishæfni frá norrænu sjónarhorni, sem unnin var í kjölfar umræðu um hnignandi samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Bandaríkjunum. Í skýrslunni kemur fram að norrænu ríkin séu meðal samkeppnishæfustu ríkja heims, séu leiðandi hagvaxtarsvæði í Evrópu sem getur vísað veginn að aukinni samkeppnishæfni. Norræna samfélagsmódelið hefur sýnt að unnt er að samræma samkeppnishæfni og félagsleg sjónarmið, umhverfis- og loftslagssjónarmið og jafnréttissjónarmið.

Í skýrslunni segir meðal annars að Norðurlöndin standi enn sterkt á grunni mikillar atvinnuþátttöku, sterkra stofnana, trausts, öflugs mannauðs og traustra opinberra fjármála. Forskot þeirra hefur þó minnkað á undanförnum árum. Megináskorun ríkjanna lýtur að því hvert fjármagni, sérþekkingu og innviðum er beint. Of lítið rennur til rannsókna og þróunar, stafrænna lausna, hugverka og fyrirtækja með mikla vaxtarmöguleika.

Sé horft til nýsköpunnar á Norðulöndum dregur skýrslan m.a. fram eftirfarandi:

  • Sterkur grunnur: Norðurlönd búa að mikilli framleiðni, öflugum rannsóknum, nýsköpun, trausti og sterkum stofnunum.
  • Hægari framleiðnivöxtur: Frá árinu 2000 hefur framleiðni aukist um 25% á Norðurlöndum, samanborið við 43% í Bandaríkjunum.
  • Fótfesta á alþjóðamörkuðum: Svæðið stendur vel í að skapa þekkingu og sprotafyrirtæki, en á erfiðara með að byggja upp fyrirtæki sem vaxa á heimsvísu.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-02-yfirlysing-fra-norraenu-radherranefndinni-norraent-hagvaxtarbandalag

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:32
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-02-yfirlysing-fra-norraenu-radherranefndinni-norraent-hagvaxtarbandalag

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.