Yfirlýsing frá norrænu ráðherranefndinni: Norrænt hagvaxtarbandalag
Imported from official source
Yfirlýsingin byggir á nýrri skýrslu um samkeppnishæfni Norðurlanda, Greining á samkeppnishæfni frá norrænu sjónarhorni, sem unnin var í kjölfar umræðu um hnignandi samkeppnishæfni Evrópu gagnvart Bandaríkjunum. Í skýrslunni kemur fram að norrænu ríkin séu meðal samkeppnishæfustu ríkja heims, með lítinn ójöfnuð, háa umhverfisstaðla og sterk réttindi launafólks. Norðurlönd eru leiðandi hagvaxtarsvæði í Evrópu sem getur vísað veginn að aukinni samkeppnishæfni, ekki aðeins á Norðurlöndum heldur einnig í Evrópu. Norræna samfélagsmódelið hefur sýnt að unnt er að samræma samkeppnishæfni og félagsleg sjónarmið, umhverfis- og loftslagssjónarmið og jafnréttissjónarmið.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 04, 2026 07:32
- Change
- Initial
- Content hash
b75ac6e9cb57976c7c8456d82e137329- All versions
- Revision history