Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla: umsóknarreglur og gögn
Auglýst verður á næstu dögum eftir umsóknum um styrki úr nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Sjóðurinn er hluti af aðgerðaráætlun fjölmiðla - nánar tiltekið aðgerð 8, sem kveður á um að stutt verði við þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpunarverkefni innan eldri fréttamiðla, þar á meðal þróun tæknilegrar nýbreytni og nýrra miðlunarleiða. Undir tæknilega nýbreytni falla t.d. stafrænar lausnir sem byggjast á gervigreind og lausnir sem nýtast við sölu vefáskrifta.
Reglur nr. 986/2026 um úthlutun styrkja úr sjóðnum voru birtar 14. september 2026. à reglunum kemur fram að sjóðnum sé ætlað að veita styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum. Ãthlutanir úr sjóðnum verða annars vegar à formi verkefnastyrkja til stofnunar og þróunar nýrra fréttamiðla og hins vegar til nýsköpunarverkefna innan starfandi fréttamiðla. Til úthlutunar árið 2026 verða 40 m.kr. að frádregnum umsýslukostnaði.
Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér reglur nr. 986/2026 à heild sinni og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.
à 7. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra fjölmiðla og à 8. gr. eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu til starfandi fjölmiðla. à 4. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram à umsókn. Umsækjendum er heimilt að sækja um styrk til fleiri verkefna en eins en ber þá að skila sérstakri umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-30-opnad-verdur-fyrir-umsoknir-i-nyskopunar-og-throunarsjod-fjolmidla-i-oktober
Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
- Imported
- October 04, 2026 07:32
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-09-30-opnad-verdur-fyrir-umsoknir-i-nyskopunar-og-throunarsjod-fjolmidla-i-oktober