Svakalega lestrarkeppnin: „Hvað heldur þú að gerist næst?“

Imported from official source

Announcement

Svakalega lestrarkeppnin hóf göngu sína í síðustu viku en yfir 100 skólar eru skráðir til leiks. Keppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu 15. sept til 6. okt.

Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna. Í keppninni skrá skólar hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun en úrslit verða tilkynnt 15. október.

Það eru barnabókahöfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa að Svakalegu lestrarkeppninni en þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín. Í síðustu viku hlutu þær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir.

Keppnin er fjármögnuð af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og er þetta annað árið í röð sem blásið er til hennar. Óhætt er að segja að um „svakalegan“ árangur hafi verið að ræða á síðasta ári en þá lásu þátttakendur samtals í 9,7 milljónir mínútna á einum mánuði. Það verður því spennandi að sjá hve margar mínútur verða lesnar í ár.

Blær og Eva Rún segja lestrarkeppnina hafa farið einstaklega vel af stað og hvetja alla til að setja sér markmið og auka lestur á heimilinu. Þótt skóli barnsins sé ekki skráður í keppnina geta allir lestrarhestar nálgast skráningarblað á sogusmidjan.is og haldið utan um lestrarmínútur sínar, fjölskyldunnar eða vinahópsins. Markmiðið er fyrst og fremst að kveikja áhugann – færnin fylgir síðan með æfingunni.

„Foreldrar ættu endilega að hvetja börnin sín áfram í lestrinum,“ segja þær stöllur og deila hér nokkrum góðum ráðum:

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-22-svakalega-lestrarkeppnin-hvad-heldur-thu-ad-gerist-naest

Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-09-22-svakalega-lestrarkeppnin-hvad-heldur-thu-ad-gerist-naest

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.