Opið fyrir tilnefningar til verðlauna Jónasar Hallgrímssonar

Imported from official source

Announcement

Opið er fyrir tilnefningar til verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningar íslenskrar tungu. Verðlaunin verða afhent á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, en almenningi gefst kostur á að senda ráðgjafarnefnd ábendingar um verðlaunahafa.

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar skal veita einstaklingi sem hefur með eftirtektarverðum hætti unnið íslenskri tungu gagn eða glætt hana nýju lífi, til dæmis með skáldskap, fræðistörfum, kennslu, þýðingum eða á annan hátt stuðlað að framgangi íslenskunnar, eflingu hennar, miðlun eða nýsköpun.

Viðurkenning íslenskrar tungu er veitt hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtæki eða stofnun sem hefur sýnt íslenskri tungu ræktarsemi eða stuðning í verki.

Á síðasta ári hlaut Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur og umsjónarmaður bókasafns Seljaskóla, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir ötult starf við að efla lestur barna og áhuga þeirra á íslensku. Samtökin ’78 hlutu viðurkenningu íslenskrar tungu fyrir nýyrðasmíði og baráttu fyrir tilvistarrétti hinsegin fólks innan tungumálsins.

Síðasti dagur til að skila inn tilnefningum er 25. október.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-22-opid-fyrir-tilnefningar-til-verdlauna-jonasar-hallgrimssonar

Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-09-22-opid-fyrir-tilnefningar-til-verdlauna-jonasar-hallgrimssonar

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.