Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

Imported from official source

Announcement

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu áttugasta og fyrsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York síðdegis á morgun, laugardag. Þorgerður Katrín hefur í vikunni tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert.

„Á þeim umrótatímum sem við nú lifum er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi þjóða og  við gætum hagsmuna okkar Íslendinga með þeim hætti,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég hef tekið þátt í viðburðum í vikunni sem snerta sumar af erfiðustu áskorunum samtímans og átt fjöldamörg tvíhliða samtöl, ekki aðeins á formlegum fundum heldur á göngunum einnig. Það gefst hvergi betra færi á þessháttar samtali, sem við þurfum að vera hluti af, og í leiðtogaviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna eins og hefur sannast sem aldrei fyrr.“

Utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra voru viðstaddar opnun ráðherravikunnar á þriðjudag líkt og greint hefur verið frá. Forsætisráðherra sat einnig sérstakan leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina svonefndu milli Ísraels og Palestínu sem forystumenn Bretlands, Frakklands, Kanada og Sádí Arabíu boðuðu til og Þorgerður Katrín flutti síðan ávarp á utanríkisráðherrafundi ríkjabandalags um sömu mál í gær, fimmtudag. Þorgerður Katrín sótti enn fremur ráðherrafund stuðningsríkja Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-25-utanrikisradherra-avarpar-allsherjarthing-sameinudu-thjodanna

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-09-25-utanrikisradherra-avarpar-allsherjarthing-sameinudu-thjodanna

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.