Utanríkisráðuneytið endurnýjar samstarfssamning við Norðurslóðanet Íslands

Imported from official source

Announcement

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Embla Eir Oddsdóttir forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands undirrituðu á föstudaginn endurnýjaðan samstarfssamning til fimm ára eða til loka árs 2031.

„Norðurslóðanetið er utanríkisráðuneytinu afar mikilvægur samstarfsaðili og hefur á undanförnum árum þróast úr því að vera innlendur samstarfs- og upplýsingavettvangur yfir í að vera virkur framkvæmdaraðili verkefna á sviði norðurslóðamála, bæði hér heima sem og á alþjóðavettvangi,“ sagði Þorgerður Katín í ávarpi sem hún flutti af þessu tilefni. „Þar liggur nefnilega styrkurinn. Þekkingin er hér. Tengslin eru hér. Og hér er getan til að leiða saman háskólasamfélagið, sveitarfélög, atvinnulíf, stjórnsýslu og félagasamtök.“

Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri, og Hlynur Guðjónsson, deildarstjóri norðurslóðadeildar í utanríkisráðuneytinu og aðalfulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, voru jafnframt viðstödd undirritun samningsins, sem fram fór á Akureyri.

Norðurslóðanet Íslands var stofnað árið 2013 til að vera miðstöð norðurslóðarannsókna og samstarfsvettvangur þeirra sem vinna að málefnum norðurslóða. Norðurslóðanetið er sjálfseignarstofnun sem hefur frá upphafi notið kjölfestufjármögnunar frá ríkinu í formi samningsbundinna rekstrarframlaga frá utanríkisráðuneytinu.

Kjarnahlutverk norðurslóðanetsins verður áfram að efla samráð, tengsl og miðlun um málefni norðurslóða innanlands, en nýji samstarfssamningurinn felur í sér fjögur megin áherslusvið:

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/utanrikisraduneytid-endurnyjar-samstarfssamning-vid-nordurslodanet-islands

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
utanrikisraduneytid-endurnyjar-samstarfssamning-vid-nordurslodanet-islands

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.