Þrír fundir um persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum
Digital Rights Classified by Officially
Samtök iðnaðarins og Persónuvernd undirbúa þrjá fundi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum. Markmiðið er að efla samtal um persónuvernd, nýsköpun og góða starfshætti við þróun og notkun nýrra tæknilausna.
Fulltrúar SI og Persónuverndar hittust á dögunum þar sem rætt var hvernig styðja megi við nýsköpun og þróun tæknilausna samhliða því að tryggja persónuvernd og réttindi notenda.
Fundirnir þrír eiga að skapa vettvang fyrir opið samtal milli fyrirtækja og Persónuverndar, efla sameiginlegan skilning og stuðla að miðlun góðra starfshátta.
Áhersla verður lögð á hagnýta fræðslu og raunveruleg viðfangsefni fyrirtækja, meðal annars varðandi framkvæmd persónuverndarreglna (GDPR). Með auknu samtali og þekkingarmiðlun er stefnt að því að auka þekkingu fyrirtækja á persónuvernd og stuðla að auknum fyrirsjáanleika í framkvæmd.
Fyrsti fundurinn er fyrirhugaður í nóvember. Í framhaldinu er stefnt að fræðslufundum og/eða vinnustofum þar sem fyrirtækjum gefst kostur á að koma spurningum sínum og reynslu á framfæri.
Nánari upplýsingar um tímasetningar, dagskrá og þátttöku á fundunum þremur verða kynntar síðar.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Persónuvernd (Icelandic DPA).
Read the original at the source: https://island.is/s/personuvernd/frett/thrir-fundir-um-personuvernd-i-taekni-og-hugverkaidnadi-a-naestu-manudum
Officially imported this from Persónuvernd (Icelandic DPA)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Persónuvernd (Icelandic DPA) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=personuvernd RSS
- Imported
- October 05, 2026 14:32
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/personuvernd/frett/thrir-fundir-um-personuvernd-i-taekni-og-hugverk...