Mælti fyrir frumvarpi sem styrkir stöðu leigjenda
Imported from official source
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir breytingum á húsaleigulögum sem ætlað er að auka húsnæðisöryggi, minnka vægi verðtryggingar og skapa leigjendum aukinn fyrirsjáanleika um þróun húsnæðiskostnaðar. Ráðherra undirstrikaði að með breytingunum sem frumvarpið fæli í sér væri í raun verið að lögfesta trausta og vel útfærða leigubremsu á íslenskum húsnæðismarkaði – sanngjarna og málefnalega bremsu sem stöðvaði sjálfvirkar mánaðarhækkanir og veitti leigjendum það öryggi og fyrirsjáanleika sem þeir ættu rétt á. Bremsan verndaði heimilin fyrir stjórnlausum hækkunum og stöðugu óöryggi og með frumvarpinu væri tekið á brýnum vanda á leigumarkaði af festu og ábyrgð.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 05, 2026 16:32
- Change
- Initial
- Content hash
241721d1c92997bf8ff099335e0a0ffa- All versions
- Revision history