Styrkir til félagasamtaka – opið fyrir umsóknir

Imported from official source

Announcement

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum íslenskra félagasamtaka um styrki til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins, sbr. forsetaúrskurð nr. 5/2025 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og þátttöku í samfélaginu.

Hægt er að sækja um tvenns konar styrki:

Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum og hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  • Verkefnastyrkir eru alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.

    Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.

    Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 29. október 2026 kl. 13.00.

    Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.

    Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

    Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Undir félags- og húsnæðismálaráðuneytinu eru umsóknareyðublöðin:

  • Umsókn um styrk af safnliðum fjárlaga 2027 vegna verkefna á sviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-05-styrkir-til-felagasamtaka-opid-fyrir-umsoknir

    Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    This publication has changed since it was first published

    2 versions recorded. The original is kept in full — nothing is overwritten.

    1. v2 imported change on current
    2. v1 as first published on

    Provenance

    Organization
    Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 06, 2026 09:32
    Versions
    2 recorded
    Identity
    2026-10-05-styrkir-til-felagasamtaka-opid-fyrir-umsoknir

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.