Góðir fundir með utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Imported from official source

Announcement

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, áttu í dag fund í Höfða í Reykjavík en Rubio kom til landsins í gær í boði utanríkisráðherra. Tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna voru í brennidepli í heimsókn Rubios, bæði á sviði varna og öryggismála sem og efnahagssamvinnu en Bandaríkin eru stærsta einstaka viðskiptaland Íslands. Norðurslóðir í víðu samhengi og alþjóðamál bar einnig á góma í samtölum ráðherranna.

Þorgerður Katrín og Rubio utanríkisráðherra fengu leiðsögn um Höfða áður en fundur þeirra hófst í morgun en um þessar mundir eru fjörutíu ár síðan leiðtogafundur Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, fór fram á sama stað. Rubio hitti einnig Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og fór sá fundur fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu og sat Þorgerður Katrín þann fund einnig. Í kjölfarið var svo haldinn fréttamannafundur með þeim Þorgerði Katrínu og Rubio.

„Samtöl mín og okkar Kristrúnar [forsætisráðherra] við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, voru bæði góð og gagnleg og augljóst að samband Íslands og Bandaríkjanna stendur styrkum fótum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-06-godir-fundir-med-utanrikisradherra-bandarikjanna

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 06, 2026 15:31
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-06-godir-fundir-med-utanrikisradherra-bandarikjanna

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.