Vel heppnuð 90 ára afmælisráðstefna

Imported from official source

Announcement

Níutíu ára afmæli almannatrygginga var fagnað með ráðstefnu í Hörpu í gær, sem Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun stóðu að. Þar var farið yfir sögu almannatrygginga, þróun og horft til framtíðar bæði hér á landi og alþjóðlega. Um 400 manns sóttu ráðstefnuna sem þótti takast mjög vel.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra ávörpuðu bæði ráðstefnuna og ræddu meðal annars um mikilvægi og umfang málaflokksins, sem öryggisnets í samfélaginu.

Forstjórar stofnananna þriggja sem stóðu að ráðstefnunni fluttu síðan erindi og fjölluðu um söguna, þróun almannatrygginga sem og starfsemi stofnana ásamt því að horfa til framtíðar. Í pallborði hagaðila var meðal annars ítrekað hvað samráð og samstarf skipti miklu máli.

Þrjú erindi voru flutt um samspil atvinnulífs og almannatrygginga og þar var meðal annars fjallað um mikilvægi lífeyrissjóða og þá stoð sem þeir mynda í lífeyriskerfinu. Einnig var fjallað um aðkomu verkalýðshreyfingarinnar sem og atvinnurekenda að lífeyriskerfinu.

Rannsókn sem TR gerði ásamt Vinnueftirlitinu, Velferðarvaktinni og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu á árinu 2025 um reynslu og aðstæður kvenna með örorkulífeyri var kynnt. Þar kom meðal annars fram að yfir 20% kvenna frá 60 ára eru með örorkulífeyri og fjölmargar þeirra hafa unnið líkamlega erfið störf og borið ábyrgð á umönnun barna sinna.

Alþjóðlegir gestir frá OECD, Alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana (ISSA) og fjölskyldumálaráðuneyti Möltu ræddu stöðuna í almannatryggingum í dag og þá framtíðarsýn sem blasir við.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-01-vel-heppnud-90-ara-afmaelisradstefna

Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 06, 2026 17:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-01-vel-heppnud-90-ara-afmaelisradstefna

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.