Óskað eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar

Imported from official source

Announcement

Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum.

Sérstök dómnefndm skipuð fulltrúum úr heimi hönnunar, nýsköpunar, atvinnulífs, félagasamtaka og hins opinbera, velur viðurkenningarhafa.

Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta:

  • Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.
  • Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.
  • Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.
  • Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu.
  • Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum, sem geta jafnt verið vegna nýrra og framsækinna lausna og rótgróinna verkefna sem hafa þegar sýnt árangur. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-07-oskad-eftir-tilnefningum-til-blaskeljarinnar

    Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 08, 2026 08:34
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-07-oskad-eftir-tilnefningum-til-blaskeljarinnar

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.