Ársfundur Jöfnunarsjóðs: Fjárhagsstaða sjóðsins sterk og almenn jöfnunarframlög hækkuð

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var haldinn í gær og þá kom út ársskýrsla sjóðsins fyrir rekstrarárið 2025. Afkoma sjóðsins á síðasta ári var jákvæð sem nemur tæplega 1,1 milljarði kr. og eigið fé sjóðsins nam tæpum 1,4 milljörðum króna í árslok 2025..

Með hliðsjón af sterkri fjárhagsstöðu Jöfnunarsjóðs tilkynnti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á ársfundinum að hann hafi samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar sjóðsins að hækka hin nýju almennu jöfnunarframlög um 1,4 milljarða kr. á þessu ári, sem verða þá alls 29,6 ma. kr. „Með þessari ákvörðun renna auknir fjármunir til sveitarfélaganna svo að þau geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum ennþá betur,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu.

Mikilvægur áfangi með gildistöku nýrra heildarlaga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði að mikilvægur áfangi hafi náðst í starfsemi sjóðsins þegar ný heildarlög um starfsemi sjóðsins tóku gildi 1. janúar sl. „Lögin fela í sér umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á regluverki sjóðsins um langt árabil. Markmið nýja framlagsins er að bæta gæði jöfnunarinnar, einfalda útreikninga og gera forsendur úthlutunar skýrari og gagnsærri. Jafnframt er leitast við að koma í veg fyrir yfirjöfnun og tryggja að sveitarfélög sem búa við sambærilegar aðstæður fái sambærileg framlög,“ sagði Eyjólfur.

Með nýju lögunum voru þrjú eldri framlög – tekjujöfnunarframlag, útgjaldajöfnunarframlag og fasteignaskattsframlag – sameinuð í eitt almennt jöfnunarframlag. Eldra fyrirkomulagið var komið til ára sinna og endurspeglaði ekki nægilega vel þær miklu breytingar sem hafa orðið á sveitarstjórnarstiginu undanfarna áratugi, ekki síst vegna sameininga sveitarfélaga.

Endurskoðun grunnskólaframlaga næsta skref

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-07-arsfundur-jofnunarsjods-fjarhagsstada-sjodsins-sterk-og-almenn-jofnunarframlog-haekkud

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 09:35
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-07-arsfundur-jofnunarsjods-fjarhagsstada-sjodsins-sterk-og-almenn-jofnunarframl...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.