Öndunarfærasýkingar - Vika 40 árið 2026

Imported from official source

Announcement

Greiningum á öndunarfæraveirusýkingum hefur almennt farið fjölgandi hér á landi undanfarnar vikur, eins og búast má við á þessum árstíma.

Greiningum á inflúensu hefur fjölgað undanfarið, en eru þó enn tiltölulega fáar. Ekki eru merki um sambærilega aukningu í greiningum á COVID-19. Engin ný tilfelli RS-veirusýkingar hafa greinst undanfarnar vikur. Af öðrum öndunarfæraveirum greinast nú helst rhinoveira (kvefveira) og enteroveira. Tölurnar byggja á sýnum sem send eru til rannsóknar og sem fyrr koma flest sýnin frá sjúkrahúsum. Fjöldi einstaklinga sem liggja á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu hefur aukist jafnt og þétt frá því í sumar.

Einstaklingar sem eru í áhættuhópum ættu að fylgjast vel með hvenær bólusetning gegn árlegri inflúensu hefst.

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 40 árið 2026 (28. september til 4. október 2026).

Mynd 1: Fjöldi greininga á öndunarfæraveirum og fjöldi einstaklinga inniliggjandi á Landspítala með öndunarfæraveirur. Sjá mælaborð.

Greiningum á inflúensu fer nú fjölgandi en eru enn tiltölulega fáar. Stöku tilfelli greindust frá lokum júlí til loka ágúst en þá fór tilfellum hægt fjölgandi. Í síðustu viku (viku 40; 28. september – 4. október) greindust 16 með inflúensu. Yfir helmingur þeirra sem greindust (10 einstaklingar) var 65 ára eða eldri. Fjórir voru 15-64 ára, einn var 5-14 ára og einn var undir 5 ára. Meirihlutinn (14 einstaklingar) greindist með inflúensutegund A(pdm09) og tveir voru með tegund A(H3). Þá lágu þrír einstaklingar á Landspítala með inflúensu, allir 65 ára eða eldri.

Nefúðabóluefni gegn inflúensu er komið til landsins og bólusetningar barna frá tveggja ára aldri eru hafnar. Hefðbundið inflúensubóluefni fyrir yngri börn og fyrir fullorðna er seint á ferð vegna framleiðslutafa sem hafa áhrif á alla Evrópu en vonir standa til að bólusetningar hefjist upp úr miðjum október á heilsugæslum og annars staðar þar sem bólusetningar forgangshópa fara fram.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/oendunarfaerasykingar-vika-40-arid-2026

Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
Imported
October 08, 2026 10:30
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/landlaeknir/frett/oendunarfaerasykingar-vika-40-arid-2026

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.