Ráðstefna um áfallamiðaðar nálganir

Imported from official source

Announcement

Education Classified by Officially

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, ávarpaði í morgun ráðstefnuna Traust í fyrirrúmi: áfallamiðaðar nálganir (e. Starting with Trust: trauma-informed pathways to resilience). Ráðstefnan er haldin í Háskólanum í Reykjavík og er liður í formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu.

Á ráðstefnunni er fjallað um áfallamiðaðar nálganir við að byggja upp traust og seiglu barna í viðkvæmri stöðu og þolenda mansals. Fjölbreyttur hópur fyrirlesara er með erindi á ráðstefnunni en aðalfyrirlesari er Rachel Witkin frá Bretlandi. Witkin hefur meira en 25 ára reynslu af því að vinna með þolendum mansals.

Dómsmálaráðuneytið, mennta-og barnamálaráðuneytið, Barna-og fjölskyldustofa og Háskólinn í Reykjavík standa að ráðstefnunni. Þátttakendur koma frá öllu Eystrasaltssvæðinu, meðal annars fræðafólk, fagfólk og fulltrúar alþjóðastofnana sem starfa að málefnum barna í viðkvæmri stöðu og þolenda mansals.

Aðgerðahópur Eystrasaltsráðsins gegn mansali fundaði í gær í tengslum við ráðstefnuna og á morgun verður fundur hjá sérfræðingahópi Eystrasaltsráðsins um börn í hættu.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992. Þar eiga sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Skrifstofa ráðsins hefur aðsetur í Stokkhólmi og á vettvangi þess fer fram margþætt samstarf aðildarríkjanna um málefni á borð við barnavernd, almannavarnir og aðgerðir gegn mansali.

Ísland tók við formennsku í ráðinu í júlí. Utanríkisráðuneytið stýrir formennskunni en nýtur fulltingis dómsmálaráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Barna- og fjölskyldustofu í störfum vinnuhópa.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-08-radstefna-um-afallamidadar-nalganir

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 12:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-08-radstefna-um-afallamidadar-nalganir

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.