Stefna um opinbera þjónustu gefin út í fyrsta sinn

Imported from official source

Announcement

Ríki og sveitarfélög gáfu í dag út sameiginlega stefnu um opinbera þjónustu. Þetta er í fyrsta sinn sem heildstæð stefna um opinbera þjónustu er sett hér á landi. Markmið hennar er að samræma þjónustu hins opinbera og gera hana betri, aðgengilegri og hagkvæmari.

Stefnan tekur mið af því að þarfir fólks eru ólíkar og að samfélagið stendur frammi fyrir hröðum breytingum, meðal annars vegna breyttrar aldurssamsetningar, aukins fjölbreytileika og örrar tækniþróunar. Viðhorf til opinberrar þjónustu hefur verið mælt undanfarin ár og hefur ánægja með þjónustuna mælst mikil. Með stefnunni er haldið áfram að bæta þjónustuna.

Stefnan eigi að styðja við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör

Framtíðarsýn stefnunnar er að á Íslandi sé veitt framúrskarandi opinber þjónusta. Þjónustan verði öllum aðgengileg á notendavænan og skilvirkan hátt, auk þess að vera samræmd, gagnsæ og hagkvæm. Þannig styðji hún við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör.

Stefnan byggist á þremur markmiðum og undir hverju markmiði eru nokkrar áherslur:

Áhersla er meðal annars lögð á notendamiðaða og samþætta þjónustu í gegnum Ísland.is, bætta þjónustu í persónu, aukna hagnýtingu gagna og tækni, einföldun regluverks, nýsköpun og aukna samvinnu milli ríkis og sveitarfélaga. Markmiðið er að almenningur og atvinnulíf upplifi opinbera þjónustu sem eina heild, óháð því hvaða stofnun eða stjórnsýslustig veitir hana.

Yfir 100 aðgerðir þvert á hið opinbera í aðgerðaáætlun

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-08-stefna-um-opinbera-thjonustu-gefin-ut-i-fyrsta-sinn

Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 12:31
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-08-stefna-um-opinbera-thjonustu-gefin-ut-i-fyrsta-sinn

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.