Norðurlöndin sameina krafta sína til að efla samkeppnishæfni

Imported from official source

Announcement

Education Classified by Officially

Samkeppnishæfni Norðurlanda var meðal helstu umræðuefna á fundum og ráðstefnu sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti í Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Ráðherra sótti fund norrænna ráðherra atvinnu- og nýsköpunarmála (MR-N) og fund samstarfsráðherra Norðurlanda (MR-SAM). Á fundunum var kynnt skýrsla um samkeppnishæfni Norðurlanda, sem löndin höfðu óskað eftir, og samþykkt sameiginleg yfirlýsing um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda og styrkja samstarf um nokkrar af mikilvægustu framtíðaráskorunum svæðisins.

Í umræðum um skýrsluna lagði ráðherra áherslu á að þótt mikilvægt væri að Norðurlöndin stæðu sterk í alþjóðlegri samkeppni mætti ekki missa sjónar á þeim gildum og styrkleikum sem einkenna norrænu samfélögin. Þar nefndi hann meðal annars jafnrétti, sem væri ekki aðeins grundvallargildi norrænna samfélaga heldur jafnframt einn af helstu styrkleikum þeirra og mikilvægur þáttur í samkeppnishæfni Norðurlanda.

Ráðherra sótti einnig ráðstefnu um samkeppnishæfni frá norrænu sjónarhorni og tók þar meðal annars þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni „Er aukið norrænt samstarf lykillinn að samkeppnishæfni til framtíðar?“

Í máli sínu lagði ráðherra áherslu á að norræna samfélagslíkanið væri áfram einn helsti styrkleiki Norðurlandanna. Jafnframt benti hann á að ekki væri hægt að ganga að því sem vísu að þeir styrkleikar sem Norðurlöndin búa yfir í dag tryggðu þeim sömu stöðu í framtíðinni.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-07-samkeppnishaefni-nordurlanda-umfjollunar-a-fundum-norraenna-radherra-og-radstefnu-i-kaupmannahofn

Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 12:31
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-07-samkeppnishaefni-nordurlanda-umfjollunar-a-fundum-norraenna-radherra-og-rads...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.