Rekstrarstyrkir auglýstir til umsóknar

Imported from official source

Announcement

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til rekstrar félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfismála á árinu 2027. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 16. nóvember 2026. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfismál og að efla almenna vitund um gildi málaflokksins.

Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.

M.a. þurfa samtökin að hafa umhverfismál sem eitt af meginmarkmiðum félagsins skv. samþykktum þess, vera opin fyrir almennri aðild einstaklinga eða félagasamtaka (sé um regnhlífarsamtök að ræða), þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félaga, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Þá er í reglunum sett fram viðmið, m.a. varðandi þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um umhverfismál og miðlun þeirra, sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.

Umsækjendur sem hlutu rekstrarstyrk fyrir árið 2026 skulu skila yfirliti yfir ráðstöfun styrksins með umsókninni.

Sótt um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Umsækjendur skrá sig inn og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilamála samkvæmt meðfylgjandi reglum verða ekki teknar til umfjöllunar.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-08

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 13:36
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-08

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.