Framlög til varnarmála, ógnin frá Rússlandi og stuðningur við Úkraínu til umræðu á varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins

Imported from official source

Announcement

Vaxandi fjárfestingar í varnarmálum, jafnari skipting byrða, ógnin frá Rússlandi og langtímastuðningur við Úkraínu voru efst á baugi á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.  Var þetta síðasti fundur varnarmálaráðherranna í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Ankara, Tyrklandi, í byrjun júlí. 

Ráðherrarnir ræddu framfylgd þeirra skuldbindinga sem samþykktar voru á leiðtogafundi bandalagsins í Haag í fyrra um stórauknar fjárfestingar í öryggis- og varnarmálum og jafnari skiptingu byrða innan bandalagsins, þar sem bandalagsríki í Evrópu og Kanada axla aukna ábyrgð.  Varnar- og fælingarstefna Atlantshafsbandalagsins og ógnin frá Rússlandi voru undirliggjandi í umræðunni, en bandalagsríki hafa ekki farið varhluta af afleiðingum stríðsrekstrar Rússa gegn Úkraínu, þar á meðal ítrekuð drónaatvik, umsvif skuggaflota Rússlands, netárásir og aðrar fjölþáttaógnir. Ræddu ráðherrarnir einnig stuðning og samstarf bandalagsins við Úkraínu, en Úkraína styður í auknum mæli við öryggi og varnir annarra ríkja, ekki síst á sviði drónavarna. Þá funduðu ráðherrarnir um kjarnavopnafælingu bandalagsins sem er ein undirstaðan í varnar- og fælingarstefnu þess.

„Stór skref hafa verið tekin í að fjárfesta í fælingu og vörnum bandalagsins og í átt að jafnari byrðaskiptingu. Við erum að sjá sterkari Evrópu í sterkara Atlantshafsbandalagi þar sem samstaða er áfram okkar helsti styrkur. Þetta er ekki gert í tómarúmi heldur í beinu samhengi við ógnina sem stafar af Rússlandi og aukna óvissu í alþjóðamálum. Vægi norðurslóða fer sömuleiðis vaxandi og framlag Íslands skiptir þar verulegu máli,“ segir Þorgerður Katrín. 

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-06-18-Framlog-til-varnarmala-ognin-fra-Russlandi-og-studningur-vid-Ukrainu-til-umraedu-a-varnarmalaradherrafundi-Atlantshafsbandalagsins

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 19:07
Versions
1 recorded
Identity
2026-06-18-Framlog-til-varnarmala-ognin-fra-Russlandi-og-studningur-vid-Ukrainu-til-umr...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.