Ísland fullgildir valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Digital Rights Classified by Officially
Ãslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. à bókuninni er kveðið á um heimild fatlaðs fólks til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
âMikilvægt er að fatlað fólk hafi aðgang að alþjóðlegum kæruleiðum. Með fullgildingu bókunarinnar styrkjum við réttarstöðu fatlaðs fólks og undirstrikum mikilvægi þess að réttindi þess séu virt,â segir Ragnar Ãór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks getur tekið kvörtun til meðferðar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en meðal annars er kannað hvort mál varði réttindi sem kveðið er á um à samningnum og hvort þegar hafi verið fullreynd þau úrræði sem eru à boði samkvæmt landslögum til að ná fram þeim réttindum, til dæmis með þvà að bera mál undir dómstóla.
Ef kvartanir uppfylla skilyrðin tekur nefndin þær til umfjöllunar og gefur út ráðgefandi álit. à kjölfarið þurfa rÃki að veita nefndinni upplýsingar um hvernig ætlunin er að bregðast við álitinu.
âÃetta eru tÃmamót sem við fögnum sérstaklega þvà sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að standa vörð um jaðarsetta hópa à okkar samfélagi,â segir Ãorgerður KatrÃn Gunnarsdóttir utanrÃkisáðherra. âMannréttindi tilheyra öllum, alls staðar, á öllum tÃmum. Að standa vörð um þessi réttindi er ekki einkamál rÃkja, heldur sameiginleg ábyrgð alþjóðasamfélagsins.â
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-06-09-Island-fullgildir-valfrjalsa-bokun-vid-samning-Sameinudu-thjodanna-um-rettindi-fatlads-folks
Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
- Imported
- October 08, 2026 19:07
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-06-09-Island-fullgildir-valfrjalsa-bokun-vid-samning-Sameinudu-thjodanna-um-rettin...