Ísland fullgildir valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Imported from official source
Íslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í bókuninni er kveðið á um heimild fatlaðs fólks til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. „Mikilvægt er að fatlað fólk hafi aðgang að alþjóðlegum kæruleiðum. Með fullgildingu bókunarinnar styrkjum við réttarstöðu fatlaðs fólks og undirstrikum mikilvægi þess að réttindi þess séu virt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Þetta eru tímamót sem við fögnum sérstaklega því sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að standa vörð um jaðarsetta hópa í okkar samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra. „Mannréttindi tilheyra öllum, alls staðar, á öllum tímum. Að standa vörð um þessi réttindi er ekki einkamál ríkja, heldur sameiginleg ábyrgð alþjóðasamfélagsins.“
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 08, 2026 19:07
- Change
- Initial
- Content hash
624004a45359ea3414ff899c67a6aedc- All versions
- Revision history