Samstarf um að vernda ímynd Íslands

Ministry for Foreign Affairs (Iceland) Version 1 original current

Imported from official source

Samkomulag um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland/Iceland hefur verið undirritað. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu á erlendum mörkuðum. Íslandsstofa mun hafa umsjón með vöktun landaheitisins ásamt því að annast verkefnastjórn á samstarfinu. ​ „Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs.“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

This version

Version
1 of 1
Recorded
October 08, 2026 19:07
Change
Initial
Content hash
3f1158108b54114267d0f01cbea89a35
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.