Brýnt að efla eigin getu og varnarsamvinnu

Imported from official source

Announcement

Mikilvægi þess að Ísland efli enn frekar samstarf sitt við bandalagsríki og styrki eigin getu til að tryggja stöðuvitund, öryggi, varnir og áfallaþol voru leiðarstef opnunarávarps Ãžorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á málþingi um öryggismál á viðsjárverðum tímum sem haldið var í Norræna húsinu í gær. Að málþinginu stóð Varðberg - samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál í samstarfi við utanríkisráðuneytið.

„Það dylst engum að við stöndum á krossgötum, hvað varðar öryggismál Evrópu og þá um leið í okkar eigin öryggis- og varnarmálum,“ sagði Þorgerður Katrín. „Grunnstoðirnar í vörnum landsins eru að mínu mati óbreyttar, en krefjast aukinnar virkni og ræktarsemi. Þar skipta aðildin að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin mestu máli. Landfræðileg lega Íslands fyrir öryggi- og varnir Norður-Ameríku og Evrópu vegur hér þungt. Það þýðir þó ekki að við getum alfarið treyst á aðra. Það er ekki valkostur. Við viljum hafa áhrif á okkar stöðu með virkri þátttöku og samstarfi.“

Í ávarpi sínu áréttaði utanríkisráðherra mikilvægi áframhaldandi stuðnings við varnarbaráttu Úkraínu og samstöðu vestrænna ríkja. Ísland yrði áfram málsvari alþjóðalaga, mannréttinda og lýðræðis.

Þá tók Þorgerður Katrín þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur fyrrverandi utanríkisráðherrum, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þar sem breytt öryggislandslag og þörfin á uppbyggingu innviða, þekkingar og getu á sviði öryggis- og varnarmála á Íslandi var til umræðu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-02-27-Brynt-ad-efla-eigin-getu-og-varnarsamvinnu

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 11:00
Versions
1 recorded
Identity
2025-02-27-Brynt-ad-efla-eigin-getu-og-varnarsamvinnu

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.