Skipulagsbreytingar lögreglu birtar í samráðsgátt

Imported from official source

Announcement

Drög að frumvarpi til breytinga á lögreglulögum og fleiri lögum vegna skipulagsbreytinga lögreglu hafa nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að koma að athugasemdum er til og með 25. október næstkomandi.

Breytingunum er ætlað að styrkja faglega getu lögreglu, einfalda stjórnskipulag og bæta nýtingu mannafla, sérþekkingar og fjármuna.

Í frumvarpinu er lagt til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú þannig að til verði tvö stór og öflug lögregluembætti á landsbyggðinni og eitt á suðvesturhorninu. Fjölga á aðstoðarlögreglustjórum og styrkja fyrirkomulag eftirlits með lögreglu.

Frumvarpið felur hvorki í sér fækkun lögreglumanna né lokun lögreglustöðva heldur verður áfram lögð rík áhersla á staðbundna þjónustu og viðbragðsgetu um land allt. Þá á fækkun embætta ekki að leiða til miðstýringar á daglegri þjónustu eða draga úr staðbundinni viðveru lögreglu.

„Umræða hefur verið um að sameina lögregluna undir einn hatt. Mér hugnast það ekki. Ég vil að lögreglan á landsbyggðinni sé sterk og haldi góðum tengslum við nærsamfélagið. Með breytingunum verða til tvö sterk embætti á landsbyggðinni sem geta byggt upp eftirsóknarverða sérþekkingu samhliða því að bjóða upp á fjölbreyttari starfsþróunarmöguleika í heimabyggð,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Í frumvarpinu er að finna heimild ráðherra til að ákveða með reglugerð að embættin á landsbyggðinni annist verkefni á landsvísu. Þessu er ætlað að skapa meiri sveigjanleika í skipulagi lögreglu en í núgildandi lögum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-08-skipulagsbreytingar-logreglu-birtar-a-samradsgatt

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 12:00
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-08-skipulagsbreytingar-logreglu-birtar-a-samradsgatt

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.