Aukin samvinna Íslands og Grænlands í brennidepli á fundi ráðherra

Imported from official source

Announcement

Sameiginlegir hagsmunir Grænlands og Íslands og öryggismál á norðurslóðum voru efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, sem fram fór í Reykjavík í gær.

„Við áttum afar gagnlegan fund um samstarf Íslands og Grænlands enda eru hagsmunir okkar um öryggi og þróun á norðurslóðum samofnir. Nýlegt samkomulag Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna styrkir öryggi og varnir í okkar heimshluta og undirstrikar mikilvægi Atlantshafsbandalagsins,“ segir Þorgerður Katrín. „Það er einlægur vilji beggja landa að styrkja tengslin enn frekar,  meðal annars á grunni sameiginlegra yfirlýsinga landanna frá árunum 2022 og 2025.“

Þá ræddu ráðherrarnir endurskoðun á Helsingforssamningnum á sviði norræns samstarfs, en fyrr á árinu var skipuð nefnd til að vinna tillögur að endurskoðun samningsins vegna þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja á jafnræðisgrundvelli.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-09-aukin-samvinna-islands-og-graenlands-i-brennidepli-a-fundi-radherra

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 12:00
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-09-aukin-samvinna-islands-og-graenlands-i-brennidepli-a-fundi-radherra

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.