Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt

Imported from official source

Announcement

Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.

Innviðaráðherra skipaði í desember sl. starfshóp með fulltrúum innviðaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að móta sameiginleg viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Í vinnu starfshópsins var stuðst við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að stuðla að því að þörfum nútímans sé mætt án þess að gengið sé á gæði komandi kynslóða. Verkefnið er liður í aðgerð 1 í stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2028.

Stjórnvöld leggja áherslu á að stuðlað sé að sjálfbærni í starfsemi sveitarfélaga en ekki hefur legið fyrir sameiginlegur skilningur á þremur þáttum sjálfbærni á sviðum efnahags, samfélags og umhverfis. Sem dæmi ber flestum saman um að fjárhagslega sjálfbært sveitarfélag hafi getu til að reka grundvallarþjónustu og innviði, takast á við fjárhagsleg áföll og framtíðaráskoranir án þess að slá af gæðum. Hins vegar hafa aðilar ekki komið sér saman um hvaða upplýsingar eða kennitölur í rekstri sveitarfélaga nái að lýsa best þessari stöðu. Unnið hefur verið að því að samræma reikningsskil sveitarfélaga og endurskoða fjármálakafla sveitarstjórnarlaga sem styður við fjárhagslega þáttinn. Mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga er jafnframt lykilþáttur í að vinna markvisst að sjálfbærni sveitarfélaga.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-09-vidmid-um-sjalfbaera-throun-sveitarfelaga-i-samradsgatt

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 13:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-09-vidmid-um-sjalfbaera-throun-sveitarfelaga-i-samradsgatt

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.