Skýrsla starfshóps um málefni gervigreindar

Imported from official source

Announcement

AI Classified by Officially

Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar sem var skipaður í júlí síðastliðnum að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skilað skýrslu sinni. Hlutverk hans var að leggja heildstætt mat á stefnu og aðgerðir stjórnvalda í málefnum gervigreindar og gera tillögur um forgangsröðun og úrbætur.

Í starfshópnum sátu Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID og formaður hópsins, Anna Kristín Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons, Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins, Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri hjá NVIDIA, og Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

Skýrsla starfshópsins Gervigreind til góðs – Ísland sem fyrirmynd í nýtingu gervigreindar til góðs fyrir samfélagið allt var kynnt fyrir forsætisráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra síðastliðinn þriðjudag og rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í skýrslunni eru lagðar fram fjöldi tillaga sem miða að því að efla ábyrga og markvissa nýtingu gervigreindar á Íslandi.

Ein af meginniðurstöðum starfshópsins er að Ísland þurfi ekki að vera leiðandi í þróun gervigreindar til að verða meðal þeirra bestu í hagnýtingu hennar.

Í skýrslunni eru skilgreindar þrjár megináherslur sem eiga að leggja grunn að árangursríkri nýtingu gervigreindar:

  • Færni okkar allra: markviss fræðsla um kosti og áskoranir gervigreindar. Landsrammi verður settur um gervigreind í skólum og að áhrif gervigreindar á vinnumarkað verði mæld.  
  • Gervigreind á íslensku, á okkar forsendum: virkja íslensk mál- og menningargögn í samstarfi við rétthafa. Búin verði til þjálfunaruppskrift og mælipróf sem styðja við þróun íslenskra mállíkana. 
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-09-skyrsla-starfshops-um-malefni-gervigreindar

    Officially imported this from Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Culture, Innovation and Higher Education (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Menningar-nyskopunar-og-haskolaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 09, 2026 14:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-09-skyrsla-starfshops-um-malefni-gervigreindar

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.