Ný skýrsla ITF: Samhæfing almenningssamgangna, gjaldtöku og skipulags gerir samgöngur skilvirkari

Imported from official source

Announcement

International Transport Forum (ITF) er samráðsvettvangur fjölda ríkja í Afríku, Asíu, Evrópu, Suður-, Norður- og Mið-Ameríku á sviði samgangna. ITF hefur nýlega sent frá sér skýrslu um hvernig stuðla megi að skilvirkari samgöngum á þéttbýlum svæðum og efla þær samhliða. Skýrslan nefnist á ensku Demand Management to Facilitate Efficient Urban Transport (2026). Í skýrslunni er m.a. fjallað um álagningu kílómetragjalds hér á landi í upphafi þessa árs.

Helsta ályktunin sem dregin er í skýrslunni er að bestum árangri megi ná með því að tengja saman í eina stefnu ólíkum þáttum eins og gjaldtöku, almenningssamgöngum, skipulagsbreytingum og fleira.

Í skýrslunni er í grófum dráttum fjallað um hvernig stjórnvöld geta stýrt eftirspurn fólks eftir samgöngum og þannig nýtt innviði betur, dregið úr umferðartöfum og neikvæðum umhverfisáhrifum, auk þess að bæta aðgang. Eftirspurnarstýring (e. demand management) felst hvort tveggja í því að draga úr ferðum og að færa þær milli ferðamáta, staða og tíma. Í skýrslunni er lögð áhersla á að hverfa frá hefðbundinni „spá og byggja“ nálgun yfir í stefnu þar sem fyrst er skilgreint hvers konar borg og samgöngukerfi stjórnvöld vilja skapa og síðan ákveðið hvernig innviðir og stjórntæki styðja þá framtíðarsýn.

Í skýrslunni er sýnt fram á að þéttari og blönduð byggð með góða tengingu við almenningssamgöngur og heimili nálægt vinnustöðum og þjónustu geti dregið úr þörf fyrir langar bílferðir. Fyrir Ísland bendir þetta til þess að fjárfestingar í almenningssamgöngum og virkum ferðamátum skili mestum árangri ef uppbygging íbúða og atvinnustarfsemi fylgir sömu stefnu. Slík nálgun gæti átt vel við Ísland, m.a. á höfuðborgarsvæðinu þar sem fólksfjöldi er mestur og umferð mest.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-09-ny-skyrsla-itf-samhaefing-almenningssamgangna-gjaldtoku-og-skipulags-gerir-samgongur-skilvirkari

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 15:30
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-09-ny-skyrsla-itf-samhaefing-almenningssamgangna-gjaldtoku-og-skipulags-gerir-s...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.