Ungmenni tókust á við öryggisáskorun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins

Imported from official source

Announcement

Yfir áttatíu þátttakendur, á aldrinum 18 til 35 ára, tóku nýverið þátt í svokallaðri Módel-NATO ráðstefnu sem fram fór í Smiðju Alþingis á dögunum. Þar var starfsemi Atlantshafsbandalagsins, nánar tiltekið fundur í Norður-Atlantshafsráðinu, endurgerð þar sem þátttakendur tókust sameiginlega á við ímyndaða öryggisáskorun.

Ráðstefnunni er ætlað að efla diplómatíska færni þátttakenda og veita þeim tækifæri til að vinna saman, takast á við krefjandi viðfangsefni og taka þátt í umræðum og ákvarðanatöku í alþjóðlegu samhengi. Þátttakendur stigu þannig í hlutverk fulltrúa allra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og nálguðust verkefnið út frá stefnu og hagsmunum viðkomandi ríkis.

„Það er gríðarlega mikilvægt að unga fólkið okkar láti sig öryggis- og varnarmál varða, enda lifum við víðsjárverðum tímum nú um stundir. Þessi æfing var því kærkomið tækifæri fyrir þau til að dýpka skilning sinn og þekkingu á eðli og starfsemi Atlantshafsbandalagsins. Það er nefnilega ekki viðbúið að það takist alltaf að sætta sjónarmið 32 ólíkra ríkja, og því er stundum sagt að Norður-Atlantshafsráðið sé besti skólinn hvað varðar diplómasíu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Módel NATO-ráðstefnan er vettvangur fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á, stunda nám eða starfa á sviði stjórnmála, alþjóðasamskipta, lögfræði eða opinberrar þjónustu. Ráðstefnan veitir þátttakendum einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í starfsemi Atlantshafsbandalagsins og reynslu af ákvarðanatöku við krefjandi aðstæður.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-09-ungmenni-tokust-a-vid-oryggisaskorun-a-vettvangi-atlantshafsbandalagsins

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 16:01
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-09-ungmenni-tokust-a-vid-oryggisaskorun-a-vettvangi-atlantshafsbandalagsins

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.