Starfshópur skoðar nýtingu vindorku á hafi

Imported from official source

Announcement

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem mun kanna möguleikann á nýtingu vindorku á hafi í lögsögu Íslands. Þetta er gert í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem segir að marka skuli stefnu um vindorkuver á hafi. Áætlað er að verkefninu ljúki síðar á þessu ári og að hópurinn skili niðurstöðum fyrir 31. október 2022.

Óskað hefur verið eftir tilnefningum í starfshópinn frá ÍSOR, Orkustofnun, Veðurstofunni og Náttúrufræðistofnun. Formaður verður skipaður án tilnefningar. Starfshópurinn mun leita upplýsinga hjá framangreindum stofnunum auk Hafrannsóknarstofnunar, Samorku og Landsvirkjunar, ásamt upplýsingum um stöðu mála og lagaumhverfi í öðrum ríkjum.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki enn sem komið er kannað ítarlega möguleika á að nýta vindorku á hafi. Til eru tvær grunngerðir vindorkuvera á hafi, annars vegar botnfastar sem þurfa að vera á minna en 60 m dýpi og hins vegar fljótandi.

„Sviðsmyndir grænbókarinnar sem kom út nú í mars sýna fram á mikla þörf fyrir orkuöflun á komandi áratugum og er mikilvægt að við leitum allra leiða og lausna í þeim efnum. Vindorkuframleiðsla á hafi er einn þeirra möguleika sem koma til greina. Skoða þarf vel og vandlega hvort og þá hvernig vindorka á hafi verði liður í þeirri orkuskiptaáætlun sem sett verður fram á næstu misserum og er hópnum ætlað að stíga fyrstu skrefin í þessari vegferð,“ segir Guðlaugur Þór.

Orkustofnun hefur unnið að kortlagningu á nálgun ýmissa ríkja á þróun vindorku á hafi sem og á landi, sem mun nýtast í vinnu starfshópsins. Einnig er hægt að líta til skýrslu sem lögð var fram á Alþingi af ráðherra orkumála árið 2018 og tók m.a. til vindorku á landi og sjávarfallaorku.

Starfshópnum er m.a. ætlað að taka saman upplýsingar um eftirfarandi atriði:

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-06-Starfshopur-skodar-nytingu-vindorku-a-hafi

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 12, 2026 09:33
Versions
1 recorded
Identity
2022-07-06-Starfshopur-skodar-nytingu-vindorku-a-hafi

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.