Stofnanaskipulag umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins til skoðunar

Imported from official source

Announcement

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftslagsáðherra hefur ákveðið að taka til skoðunar stofnanaskipulag ráðuneytisins með það að markmið að efla og styrkja starfsemi stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Ráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun vinnu sem nú er hafin við að  greina umbótatækifæri og áskoranir sem felast í núverandi stofnanakerfi ráðuneytisins.

Stofnanir umhverfis- orku- og loftslagráðuneytisins eru 13 talsins. Hjá þeim starfa 600 starfsmenn á um 40 starfsstöðvum víða um land og eru  61% starfanna  Ã¡ höfuðborgarsvæðinu.  Flestar stofnananna eru svo nefndar A hluta stofnanir þar sem forstöðumaður stýrir starfi stofnunarinnar, en þrjár stofnanir hafa stjórn og eru það Úrvinnslusjóður, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Vatnajökulsþjóðgarður, auk Þingvallanefndar sem fer með yfirstjórn Þingvallaþjóðgarðs. 

Við greiningarvinnuna verður lögð áhersla á gott samstarfi við stjórnendur, auk þess sem leitað verður eftir sjónarmiðum og hugmyndum starfsmanna. Einnig verður haft náið samstarf við önnur ráðuneyti sem vinna að sambærilegum verkefnum.

„Verkefni stofnana umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins eru afar mikilvæg og tryggja þarf að stofnanir geti sinnt kjarnahlutverki sínu samhliða því að takast á við margvíslegar áskoranir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Með því að stækka skipulagseiningarnar er hægt að efla, styrkja og samræma betur starf stofnana ráðuneytisins og þannig auka slagkraft þeirra, auk þess sem ýmis tækifæri liggja í auknu samstarfi opinberra aðila við að byggja upp sameiginlegar starfsstöðvar. Þá þarf einnig að horfa til þess að opinber störf séu ekki staðbundin, nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega og þannig er hægt að  styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu.“

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-05-Stofnanaskipulagumhverfis-orku-og-loftslagsraduneytisins-til-skodunar

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 12, 2026 09:33
Versions
1 recorded
Identity
2022-07-05-Stofnanaskipulagumhverfis-orku-og-loftslagsraduneytisins-til-skodunar

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.