Friður krefst hugrekkis til að ímynda sér annan heim

Imported from official source

Announcement

Mikilvægt er að draga lærdóm af leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 og láta ekki aukna alþjóðlega spennu skyggja á möguleika til friðar. Þetta var á meðal þess sem fram kom í opnunarávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem hún flutti á friðarráðstefnunni Imagine Forum sem fram fór í Reykjavík í dag.

Í tilefni þess að í ár eru fjörutíu ár liðin frá sögulegum leiðtogafundi í Höfða var litið til fortíðar á ráðstefnunni og rætt hvaða lærdóm megi draga af þeim tímamótafundi og hvort ríki heims geti enn unnið að diplómatískum lausnum á tímum vaxandi spennu í heiminum.

Í tengslum við ráðstefnuna átti utanríkisráðherra tvíhliða fundi með Volker Turk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna (SÞ), og Izumi Nakamitsu, aðstoðarframkvæmdastjóra SÞ og æðsta fulltrúa stofnunarinnar í afvopnunarmálum.

Í ræðu sinni rifjaði Þorgerður Katrín upp leiðtogafund Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Mikail Gorbatstjov, leiðtoga Sovétríkjanna sálugu, í Höfða sem lauk fyrir sléttum fjörutíu árum í dag. Þó fundur tvímenninganna hafi ekki skilað samkomulagi stórveldanna um fækkun kjarnavopna á sínum tíma, hafi hann engu að síður lagt grunn að sögulegum árangri í afvopnunarmálum.

„Kannski var það raunverulegur árangur fundarins að framtíðin hætti, um stundarsakir, að virðast óumflýjanleg,“ sagði Þorgerður Katrín í ræðu sinni og lagði áherslu á að leiðtogarnir hefðu leyft sér að ímynda sér annan veruleika en samtímans sem einkenndist af ótta og vígbúnaðarkapphlaupi kalda stríðsins.

Í ræðu sinni minnti utanríkisráðherra á að friður verði ekki til af sjálfu sér heldur þurfi að móta hann, semja um hann og viðhalda með þolinmæði, samkennd, stofnunum og diplómasíu að vopni.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-12-fridur-krefst-hugrekkis-til-ad-imynda-ser-annan-heim

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 12, 2026 16:01
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-12-fridur-krefst-hugrekkis-til-ad-imynda-ser-annan-heim

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.