Utanríkisráðherra fundaði með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna

Imported from official source

Announcement

Digital Rights Classified by Officially

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) og starf Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

„Það var ánægjulegt að taka á móti Volker Türk hér á Íslandi en við höfum átt góð samtöl á fundum okkar í Genf um mannréttindamál á heimsvísu og hlutverk Íslands. Við ræddum meðal annars stöðu mála í Íran, Afganistan, Súdan og Úkraínu, ásamt viðvarandi árásum og ofbeldi í Palestínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Á tímum bakslags gagnvart grundvallar mannréttindum og viðvarandi áskorana tel ég mikilvægt Ísland haldi áfram sem sterkur málsvari fyrir mannréttindi fyrir öll, allstaðar. Á meðan við eigum sæti í mannréttindaráðinu munum við vinna áfram á uppbyggilegan hátt og í samstarfi við önnur aðildarríki hvað varðar að standa vörð um mannréttindi og alþjóðakerfið.“

Ísland veitir árleg óeyrnamerkt kjarnaframlög til OHCHR í gegnum rammasamning sem gildir til loka árs 2028. Þá eru einnig veitt framlög til þriggja valinna sjóða stofnunarinnar sem tengjast allsherjarúttektum og réttindum hinsegin fólks.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry for Foreign Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-12-utanrikisradherra-fundadi-med-mannrettindafulltrua-sameinudu-thjodanna

Officially imported this from Ministry for Foreign Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry for Foreign Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Utanrikisraduneytid/rss RSS
Imported
October 12, 2026 17:00
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-12-utanrikisradherra-fundadi-med-mannrettindafulltrua-sameinudu-thjodanna

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.