Utanríkisráðherra fundaði með mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna
Imported from official source
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) og starf Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 12, 2026 17:00
- Change
- Initial
- Content hash
58840a4ed98ededf9653fd3716d808a9- All versions
- Revision history