Dómsmálaráðherra fundaði með Volker Türk

Imported from official source

Announcement

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fundaði í dag með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Türk er staddur hér á landi í vinnuheimsókn

Á fundinum var farið almennt yfir stöðu mannréttindamála á Íslandi, bakslagið í mannréttindabaráttunni og kynjajafnrétti.

Á fundinum áréttaði ráðherra að Ísland tæki alþjóðlegar skuldbindingar sínar í mannréttindamálum alvarlega, og að íslenskt réttarkerfi væri að mörgu leyti litað af alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins á borð við mannréttindasáttmála Evrópu.

Þá minntist ráðherra á að skýrslu Íslands vegna fjórðu allsherjarúttektar mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hefði verið skilað í lok síðustu viku. Þegar væri farið að huga að undirbúningi fyrirtöku vegna skýrslunnar, sem fer fram í Genf í janúar.

Türk spurði sérstaklega hvað Ísland væri að gera í tengslum við kvennamorð (e. femicide). Ráðherra vísaði í því samhengi til nýrrar landsáætlunar stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2026-2030, þar sem gert er ráð fyrir að verklag við rannsókn á slíku ofbeldi verði skoðað í samstarfi við ríkislögreglustjóra. Enn fremur vísaði ráðherra til þess að aðgerð stjórnvalda gegn kvennamorði eigi rætur sínar að rekja til tilmæla frá GREVIO.

Ráðherra lagði mikla áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi og mikilvægt væri að stíga fast til jarðar í þeim efnum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-12-domsmalaradherra-fundadi-med-volker-turk

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 12, 2026 17:02
Versions
1 recorded
Identity
2026-10-12-domsmalaradherra-fundadi-med-volker-turk

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.