Auglýsing um starf aðstoðarmanns landlæknis

Imported from official source

Announcement

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða aðstoðarmann landlæknis. Um er að ræða áhugavert, krefjandi og mjög fjölbreytt starf sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði, fagmennsku og sveigjanleika í vinnutíma. Næsti yfirmaður er landlæknir en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við aðra starfsmenn embættisins.

Aðstoðarmaður landlæknis sinnir hvers kyns viðfangsefnum sem styðja landlækni og embætti landlæknis við að rækja hlutverk sitt.

Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna frá almenningi, fjölmiðlum, opinberum aðilum og fyrirtækjum.

Samskipti við fjölmiðla, viðtalsbókanir og skrif fréttatilkynninga.

Almenn skrifstofustörf, skjalagerð og skjalavistun.

Undirbúningur og eftirfylgni við fundi framkvæmdastjórnar.

Þátttaka í undirbúningi, skipulagningu og setu funda og viðburða.

Ýmis önnur verkefni að beiðni landlæknis.

Góð reynsla af samskiptum við fjölmiðla er kostur.

Afbragðs þekking og færni í íslensku er skilyrði.

Góð færni í ensku er skilyrði, norðurlandamál er kostur.

Reynsla af notkun samfélagsmiðla í miðlun upplýsinga.

Góð almenn tölvukunnátta, hæfni í notkun helstu skrifstofuforrita.

Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.

Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð, nákvæmni, skipulagshæfni og þjónustulund.

Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum, samstarfsvilji og sveigjanleiki í daglegum störfum.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins og við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/auglysing-um-starf-adstodarmanns-landlaeknis

Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
Imported
October 13, 2026 08:33
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/landlaeknir/frett/auglysing-um-starf-adstodarmanns-landlaeknis

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.