Námskeið fyrir prófdómara árið 2027
Education Classified by Officially
Árið 2027 mun Samgöngustofa halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) þann 18. mars og 16. september. Námskeið fyrir einstjórnarvélar (FE) verður haldið þann 4. mars.
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 9:00-17:00.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið prófdómaranámskeið á síðastliðnum 12 mánuðum. Skráning prófdómara á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) þarf að berast frá þeim flugrekanda eða þjálfunaraðila sem viðkomandi mun nýta réttindi sín hjá.
Vinsamlega sendið skráningu með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en tveimur vikum fyrir áætlaðan námskeiðsdag. Hámarks fjöldi á námskeiðið er 20 manns. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að velja inn á námskeiðið eftir gildistíma réttinda ef til þess kemur að fleiri en 20 skrái sig. Við skráningu þarf að tilgreina nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda (ef við á).
Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority).
Read the original at the source: https://island.is/s/samgongustofa/frett/namskeid-fyrir-profdomara-arid-2027
Officially imported this from Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=samgongustofa RSS
- Imported
- October 13, 2026 10:31
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/samgongustofa/frett/namskeid-fyrir-profdomara-arid-2027